Skólar ættu að taka fangelsi til fyrirmyndar.

Ég legg til að girt verði í kringum alla skóla með gaddavír eins og tíðkast sumsstaðar í bretlandi og bandaríkjunum! Þetta er ótvíræð sönnun fyrir því að skóli getur verið stórhættulegur í sinni núverandi mynd. Þar ætti að ráða reynda, vopnaða fangaverði og hafa að minnsta kosti 1 á vakt fyrir hverja álmu skólans og 3 við hvern inngang. Einnig er löngu orðið tímabært að vopnaleit sé gerð á íslenskum skólabörnum, skönnunartæki á borð við þau sem eru á flugvöllum landsins væru ódýr fjárfesting samanborið við mannslífin sem þau myndu bjarga og öryggið sem þau myndu veita börnum og starfsmönnum skólans.

Einnig legg ég til að nokkrir fangaklefar yrðu hannaðir í hverjum skóla þar sem börn sem gjörn eru á að skrópa fengju fría gistingu, aðhald og uppihald. Þannig væri einnig hægt að tryggja að þau ynnu heimavinnuna sína og slugsuðust ekki aftur úr.

Hvað hefði gerst ef þessi bílstjóri hefði verið með plön um að keyra bílnum inn í skólann og klessa honum á burðarsúlu? Sjálfvígssprengjumenn eru til alls líklegir! Það hefði kviknað í með þeim afleiðingum að skólinn hefði hrunið til grunna! (eins og við komumst að í fyrstu færslunni á þessu bloggi)

Verndum börnin okkar! Þau eru stórhættuleg!


mbl.is „Eiginlega bara enn í sjokki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég held þú hafir ekki lesið fréttina og ef þúhefur lesið hana þá er greinilegt að þú hafir ekki skilið það sem að þú last

sigurjon (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 16:24

2 identicon

Mikið rosalega er þetta einhvað ýkt hjá þér. Ég er þér 5% sammála. Sum börn eru í rugli en þetta með vopnaða fangaverði þykir mér of langt gengið.

Emil (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 19:45

3 identicon

Ýkt hjá mér! Mér finnst ýkt hvernig börn vaða uppi með tussustælum og hryðjuverkum! Viljum við ala upp hippa og dópsjúka dóna! Ég hef sko séð fullt af þessum ungu dónum í kringlunni! Þeir gusa yfir aðra ónotum og slugsa allan daginn! Það þarf aga og það strax! Í raun er ég ekki að ganga nógu langt! Skriðdrekar og hermenn væru best til þess fallnir að tryggja öryggi skólabarna okkar og góða menntun!!

Einnig væri ekki slæm hugmynd að hafa síki í kringum skóla með krókódílum eða einhverju álíka og næga sprengju og dóphunda. Turnar fyrir sniper skyttur kæmu svo endanlega í veg fyrir skróp!

Ég býð þess dags með von og þrá í hjarta að börnin mín og börn bræðra minna getað menntað sig við slíkt öryggi! Ég veit ekki með þig en mér er annt um æsku þessarar þjóðar og ég geri kröfu um að Björn Bjarnason og aðrir ráðherrar taki skurk í þessum málum.

Guðjón (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 23:52

4 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

*hehehe*

Andskoti er fólk lélegt í að spotta húmor. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 27.8.2008 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband